06. mars 2026
Áhugverðir viðburðir framundan
Kæru Korpúlfar
Þökkum viðburðaríka viku og góða þátttöku,
svo og útskriftahópi ljósmyndanámskeiðsins til hamingju.
Með hjartans ósk um gleðilega helgi,
Birna og Ríkharð Brynjólfsson formaður Korpúlfa.
22. febrúar 2026
Gleðifrétt hægt verður að kaupa heitan mat á ný.
Heil og sæl
Það er ánægjulegt að tilkynna að frá og með mánudeginum 2. mars 2026
verður hægt að panta á ný heitan hádegismat í Borgum og öðrum félagsmiðstöðvum.
Gerður hefur verið samningur við fyrirtækið Krydd og Kavíar um framleiðslu matar fyrir velferðasvið.
Fram að þeim tíma verður áfram hægt að kaupa léttan mat í Borgum eins og hefur verið í boði undanfarið.
Þökkum skilninginn, gleðilega Góu og stjórn Korpúlfa vonast eftir góðri mætingu á aðalfundinn á miðvikudaginn 25. feb. kl. 13:00 fín áður auglýst dagskrá og fínar veitingar í lok fundar.
Góð kveðja
Birna.
18. febrúar 2026
Gleðidagar framundan.
Kæru Korpúlfar
Takk fyrir gleðina í dag öskudagsskemmtun í Borgum undir stjórn Þóru, Amalíu og Ingibjargar.
Takk fyrir góða þátttöku í ferðunum sem eru framundan, ferðanefndin gerir allt til að ná niður biðlistum.
Takk fyrir góða þátttöku á ljósmyndanámskeiðinu í Borgum sem hefur gengið vel.
Takk fyrir skilning á þeirri breyttu matarþjónustu sem skyndilega breyttist hjá okkur og takk eldhússtelpurnar okkar fyrir góðu lausnir.
Vekjum athygli á aðalfundi Korpúlfa miðvikudaginn 25. febrúar kl. 13:00 í Borgum, venjulega aðalfundarstörf, tónlistardagskrá, sögulestur og glæsilegar veitingar.
Dansleikfimi með Auði Hörpu byrjaði 16. feb. og ný tímasetning er kl. 11:15 annan hvern mánudag, næst 23. febrúar kl. 11:15 í Borgum.
Fimmtudaginn 26. feb. kl. 13:00 mun Sævar Kristinsson heiðra okkur með nærveru sinni í Borgum og kynna bókina Síungir karlmenn,sem hann er höfundur að ásamt Karli G. Friðrikssyni. Viðburður á vegum menningarnefndar.
Miðvikudaginn 4. mars kl. 13:00 mun Karl Hinrik Jósafatsson Korpúlfur með meiru vera með myndasýningu og frásögn frá fjallgönguafreki sínu, verður nánar auglýst þegar nær dregur. Viðburður á vegum fræðslunefndar.
Fimmtudaginn 5. mars verður boðið til Hagyrðingarmóts Korpúlfa kl. 13:00 í Borgum undir stjórn Ragnars Inga Aðalsteinssonar.
Vonumst til að sem flestir taki þátt í gleðinni með okkur.
Theodór formaður Korpúlfa og Birna.
16. febrúar 2026
Aðalfundarboð Korpúlfa og tillaga uppstillingarnefndar
Aðalfundarboð Korpúlfa
Stjórn Korpúlfa boðar til aðalfundar Korpúlfa, félags eldri borgara í Grafarvogi.
Fundarstaður : Borgir, Spönginni 43, 112 R.
Fundartími : Miðvikudagurinn 25. febrúar 2026 kl. 13:00.
Vonumst til að sjá ykkur sem allra flest.
Stjórn Korpúlfa.
Uppstillingarnefnd Korpúlfa
Uppstillingarnefnd Korpúlfa, vegna kosninga formanns, stjórnar, varamanns í stjórn, nefnda og skoðunarmanna reikninga, á aðalfundi 25. febrúar 2026, sbr. 5. gr. laga félagsins, hefur lokið störfum. Tillögur nefndarinnar eru ritaðar hér fyrir neðan. Nöfn þeirra sem ekki sitja í stjórn eða nefnd á yfirstandandi starfsári eru skáletruð.
Formaður
Ríkharð Brynjólfsson
Stjórn
Margrét Sölvadóttir s. 693-4490
Jón Víglund Pétursson s. 895-7380
Rannveig Guðmundsdóttir
Haukur S. Harðarson s. 895-1689
Varamaður í stjórn
Margrét Eiríksdóttir s. 820-5672
Fræðslunefnd
Guðrún Þórðardóttir.
Kolbrún Ingólfsdóttir .
Sigurður Jóhannsson
Ferðanefnd
Sigríður H. MacEhern s. 696-3100
Jóna Þ. Vernharðsdóttir s. 699-6355
Sigmundur Stefánsson
Menningarnefnd
Ingibjörg Óskarsdóttir
Anna Sigríður Jensen
Sven Sigurðsson
Skemmtinefnd
Amalía Pálsdóttir
Vigfús Ólafsson
Ásdís M. Magnúsdóttir s. 694-3396
Guðrún Dúa Kristinsdóttir
Kristján G. Kristjánsson
Ólöf Björnsdóttir
Þorlákur Kjartansson
Skoðunarmenn reikninga
Hermann Guðmundsson
Ingi Sæmundsson
21. janúar 2026
19. janúar 2026
Áhugverð vika framundan.
Kæru Korpúlfar
Vekjum athygli á eftirfarandi með góðri kveðju :
Njótið vel og ánægjulegt hversu vel nýja árið 2026 fer af stað hjá okkur með góðri þátttöku í alla dagskráliði.
Theodór og Birna.
09. janúar 2026
Árið 2026 fer vel af stað hjá okkur.
Kæru Korpúlfar
Vekjum athygli á að
Með allra bestu nýárskveðju,
Theodór formaður Korpúlfa og Birna.
©2022 Korpúlfar - Spönginni 43, 112 Reykjavík - Vefstjóri Snæbjörn Kristjánsson