Menningarnefnd Korpúlfa: Dagskrá vorannar 2026, uppfærð 1. mars

Klukkan 13:00, nema annað sé tiltekið


15. janúar – Bókmenntahópur

          Fjallað um bókina Rokið í stofunni eftir Guðrúnu Jónínu Magnúsdóttur

22. janúar – Ferðakynning

          Sigrún Valbergsdótttir kynnir ferð á slóðir Agnesar Magnúsdóttur samkvæmt

          lýsingu Hönnuh Kent í bók hennar Náðarstund

29. janúar – Engin dagskrá vegna þorrrablóts

01. febrúar á sýningu– Traktorskynning

          Sigurmundur Haraldsson kynnir sögu Ferguson traktors síns og sýnir myndir

12. febrúar – Sýningarheimsókn

          Farið á sýninguna Ljáðu mér vængi í gömlu Loftskeytastöðinni á Melunum

          þar sem fjallað er um ævi Vigdísar Finnbogadóttur forseta.

19. febrúar – Bókmenntahópur

         Fjallað um bókina Játningar landnemadóttur  eftir Laura Goodman Salverson

16. febrúar – Dagskrá frestað

05. mars - Hagyrðingamót

          Ragnar Ingi Aðalsteinsson stjórnar hagyrðingamóti

12. mars – Lífsreynslusögur

          Margrét Sölvadóttir rekur reynslusögur úr eigin lífi

19. mars – Bókmenntahópur

          Fjallað um bókina Sumarbókin eftir Tove Jansson

26. mars – Tónlist

          Sýnd upptaka af tónleikum André Rieu

09. apríl – Bókakynning

          Séra Vigfús Bjarni Albertsson kynnir bækur sínar

16. apríl – Bókmenntahópur

          Fjallað um bók sem valin var 19. mars

30. apríl – Bókarkynning

Sævar Kristinsson kynnir bók sína og Karls G. Friðrikssonar Síungir karlmenn

07. maí – Ferðamyndasýning

          Ingibjörg Óskarsdóttir sýnir myndir frá ferðalögum Korpúlfa

14. maí – Bókmenntahópur

          Fjallað um bók sem valin var 16. apríl