Aðalfundar Korpúlfa miðvikudaginn 25. febrúar 2026 haldinn í Borgum

 

Fundargerð

Meðfylgjandi skjöl: Ársskýrsla félagsins fyrir árið 2025.

Ársreikningur Korpúlfa 2025

Skýrsla uppstillingarnefndar fyrir starfsárið 2026 til 2027

 

 1. Formaður Korpúlfa Theodór Blöndal kynnti kór Borgarholtsskóla undir stjórn Guðbjargar Hilmarsdóttur og sönghóp Korpúlfa, Korpusystkin undir stjórn Helga Hannessonar sem sameinuðust um söngdagskrá.

 

 2. Formaður Theodór Blöndal setti síðan aðalfundinn og lagði til að Haraldur Sumarliðason yrði fundarstjóri. Það var samþykkt samhljóða.

 

 3. Haraldur Sumarliðason tók við sem fundarstjóri og lagði til að Guðrún Barbara yrði fundarritari og var það einnig samþykkt samhljóða

 

 4. Fundarstjóri kynnti fundardagskrá.

 

 5. Formaður Korpúlfa las ársskýrslu félagsins 2025. Sjá meðfylgjandi skjal númer 1.

 

 6. Hörður Rúnar Einarsson kynnti ársreikning Korpúlfa í fjarveru gjaldkera Rannveigar Guðmundsdóttur. Ársreikningurinn var samþykktur með öllum greiddum atkvæðum nema einu. Sá hinn sami gerði grein fyrir atkvæði sínu en þar sem ekki var hægt að varpa ársreikningnum upp á skjá, var hann einungis lesinn fyrir fundarmenn. Þannig afgreiðslu taldi viðkomandi aðili að ekki væri hægt að samþykkja, fólk þyrfti að sjá það sem það væri að samþykkja. Sjá meðfylgjandi skjal nr. 2.

 

 7. Formaður kjörnefndar Korpúlfa, Sigmundur Stefánsson bar fram tillögur að stjórn og nefndum Korpúlfa fyrir starfsárið 2026-2027. Sjá meðfylgjandi skjal nr. 3.

 

 8. Fundarstjóri sá um kosningu formanns og var Ríkharður Brynjólfsson kosinn með öllum greiddum atkvæðum

 

 9. Fundarstjóri sá einnig um kosningu stjórnar og nefndarmanna og voru eftirtaldir aðilar kosnir í stjórn: Margrét Sölvadóttir, Jón Víglund Pétursson, Rannveig Guðmundsdóttir og Margrét Eiríksdóttir var kosin varamaður.

Þá var kosið í nefndir og hélst fræðslunefnd og menningarnefnd óbreytt frá í fyrra.

En fræðslunefnd skipa: Guðrún Þórðardóttir, Kolbrún Ingólfsdóttir og Sigurður Jóhannesson.

Menninganefnd skipa: Ingibjörg Óskarsdóttir, Anna Sigríður Jensen og Sven Sigurðsson.

Ferðanefnd fékk nýja aðila þær Sigríður H. MacEhern og Jónu Þ. Vernharðsdóttur en Sigmundur Stefánsson hélt áfram.

Skemmtinefnd fékk tvo nýja aðila, þær Amalíu Pálsdóttur og Ásdísi M. Magnúsdóttur en áfram sitja Vigfús Ólafsson, Guðrún Dúa Kristinsdóttir, Kristján G. Kristjánsson, Ólöf Björnsdóttir og Þorlákur Kjartansson.

 

10. Kosning skoðunarmanna reikninga.

Þeir halda áfram frá í fyrra og eru Hermann Guðmundsson og Ingi Sæmundsson.

 

11. Þakkarorð og þakkargjafir sáu Birna og Guðrún Barbara um.

Inga Sæmundssyni og Agli Sigurðssyni var þakkað fyrir veru sína í ferðanefnd og fengu þeir lítinn þakklætisvott að gjöf.

Sigurmundi Haraldssyni var þökkuð góð störf í skemmtinefnd og utan hennar og fékk hann glaðning að gjöf. Andrési Garðarssyni var einnig þakkað fyrir veru sína í skemmtinefnd.

Amalía Pálsdóttir, Jóna Hallgrímsdóttir og Steinari Gunnarssyni voru þökkuð stjórnarseta og fengu glaðning að launum.

Þá var komið að fráfarandi formanni og var honum einnig þakkað og fékk hann körfu með ýmsu góðgæti í fyrir vel unnin störf í þágu Korpúlfa.

 

12. Steinar Gunnarsson flutti gamansögu um mosaeyðingu.

 

13. Þá var komið að öðrum málum. Fráfarandi formaður Theódór Blöndal bauð nýja stjórn ásamt nýjum formanni velkomna til starfa.

Nýkjörinn formaður Ríkharður Brynjólfsson flutti tölu.

Fundarstjóri sleit fundi kl. 14:30.

 

Kaffi var í boði hússins og glæsilegar veitingar.

 

Ritari fundargerðar: Guðrún Barbara Tryggvadóttir