Ársskýrsla Korpúlfa fyrir árið 2025.


Ársskýrsla Korpúlfa 2026


Félag eldri borgara í Grafarvogi.

Aðalfundur Korpúlfa 2025 var haldinn í Borgum  26.febrúar 2025. Á fundinum voru eftirtaldir kosnir í stjórn Korpúlfa. Theodór Blöndal formaður, Amalía Pálsdóttir, Rannveig Guðmundsdóttir, Jóna Hallgrímsdóttir, Ríkharð Brynjólfsson og Steinar Gunnarsson varamaður í stjórn.

Í fræðslunefnd voru kosin : Kolbrún Ingólfsdóttir, Guðrún Þórðardóttir og Sigurður Jóhannsson. 

Í menninganefnd : Ingibjörg Óskarsdóttir, Anna Sigríður Jensen og Sven Sigurðsson.

Í ferðanefnd : Sigmundur Stefánsson, Egill Sigurðsson og Ingi Sæmundsson.

Í skemmtinefnd : Þorlákur Kjartansson, Sigurmundur Haraldsson, Ólöf Björnsdóttir, Vigfús Ólafsson, Andrés Garðarsson, Guðrún Dúa Kristinsdóttir og Kristján G. Kristjánsson.

Vefstjóri heimasíðu Korpúlfa er Snæbjörn Kristjánsson.

Umsjónarmaður facebook síðu Korpúlfa er Grímkell Arnfljótsson. Skoðunarmenn reikninga voru kosnir Hermann Guðmundsson og Ólafur Kristófersson.  


Á árinu 2025 voru haldnir 13 stjórnarfundir og 11 stjórnar og nefndarfundir. Auk þess voru ýmsir skipulagsfundir með gestum og nefndarfundir á árinu.  Alls voru 6 félagsfundir allt árið haldnir í Borgum með metnaðarfullri dagskrá, tónlist, fræðslu og  margir góðir gestir heiðruðu okkur með nærveru sinni. Meðal gesta voru Rakel Garðarsdóttir með kynningu á sjónvarpsþáttunum um Vigdísi Finnbogadóttur, Ragnar Ingi Aðalsteinsson, Dagþór Haraldsson með myndakynningu, Bergþóra Baldursdóttir sjúkraþjálfari með kynningu um byltuvarnir, Sólveig og Harpa Sif með ferðakynningu á vegum Bændaferða Alparósir. Yngvi Björnsson prófessor í H.R.  með fyrirlestur um Gervigreind og listina að læra. Jóhanna Þórhallsdóttir söngkona og Óttar Guðmundsson geðlæknir voru sérstakir gestir á kynningarhátíð í september í Borgum.  Björn Snæbjörnsson formaður Landssambands eldri borgara. Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri í Reykjavík. Ösp Árnadóttir frá Landlæknisembættinu með erindi um fimm leiðir að betri vellíðan. Egill Sigurðsson flutti okkur 90ára afmæliserindi á félagsfundi 30. október. Hátíðalegur aðventufundur var haldinn 10. des. í Borgum forseti Íslands Halla Tómasdóttir og Björn Skúlason heiðruðu okkur með nærveru sinni. Tónlistarnemendurnir Bjartur Lárus og Tinna Long spiluðu á trompet og grunnskólabörn frá Engjaskóla fluttu okkur helgileik undir stjórn kennara sinna. Sr. Vigfús Bjarni Albertsson flutti jólahugvekju og Margrét Eiríksdóttir las jólasögu. Boðið var upp á heimagerðar smákökur starfsfólksins í Borgum og Helga Þórey bjó til súkkulaði fyrir þá 200 gesti sem sóttu fundinn.     

19.janúar voru haldnir styrktartónleikar í Borgum í umsjón Ragnars Inga Aðalsteinssonar,   13. mars voru haldnir tónleikar fyrir eldri borgara í Borgum með hljómsveitunum Espólín, Spotlight og Dóru og döðlunum undir stjórn Ólafs Elíassonar. Pöbbkviss spurningarkeppni fór fram í Borgum 6. febrúar. Haldinn var skemmtileg Öskudagsskemmtun í Borgum á öskudaginn 5. mars.  Sinfóníuhljómsveit Íslands bauð Korpúlfum  til sumartónleika í Hörpunni 19. ágúst.  Einnig fór hópur Korpúlfa á jólatónleika Geirmundar í Hörpunni Syngjandi sveifla í nóvember.


Hópur Korpúlfa fór á tónleikana Tómas og við í Salnum í Kópavogi 22. febrúar, einnig 29. mars á tónleikana Á Ljúflingshóli í Salnum.  Þá þáðu nokkrir Korpulfar boð um að fara með Sléttúlfum í ferð á Landnámssetrið í Borgarnesi 4. maí. Einnig fór fjölmennur hópur Korpúlfa í leikhúsferð 19. desember að sjá Rauðu Mylluna í Borgarleikhúsinu.


Sumrinu var fagnað í Borgum með tónlistarveislu 30. apríl með tónlistarmönnunum Pálmari Ólafssyni, Kristjáni Hermannssyni og Grími Sigurðssyni.                                                         

12. júní var síðan hreinsunardagur í Borgum og gert fínt fyrir sumarið.                                 

Sumarið 2025 var einnig boðið upp á nokkrar Heiðmerkurgöngur í fararstjórn Sigurðar Jóhannssonar.

Velferðarráð Reykjavíkurborgar veitti Korpúlfum styrk fyrir verkefnið Gróðurkassar við Borgir á vormánuðum 2025. Var þá hafist handa við að smíða fleiri gróðurkassa við Borgir  og sótt mold í kassana en einvala lið tók þátt í þessu samvinnu verkefni.                                       

Einnig fékk skemmtinefnd Korpúlfa styrk en frá hverfissjóði Reykjavíkur svo og sönghópurinn Korpusystkin.

Námskeið var haldið í steinamálun 11. mars í umsjón Guðfinnu Rósantsdóttur. Þá hafa Ingibjörg, Dagþór og Sölvi Steinn staðið fyrir tölvufærniaðstoð á fimmtudagsmorgnum í vetur. Mánaðarlega hefur verið farið í rafíþróttir,  fyrst fór kennslan fram í Borgum en seinni hluta árs hafa þátttakendur sótt rafíþróttir í Egilshöll með góðum árangri.

Starfsskrá 2025-2026 var gefin út í ágúst og að venju borin út til allra félagsmanna ásamt upplýsingabréfi. Fjölbreytni hefur aldrei verið meiri og mikil fjölgun á alla viðburði sem í boði eru. Húsakynni í Borgum eru öll mikilli notkun og allt gert til að koma í veg fyrir biðlista á öll námskeið og viðburði. Dagskráliðir oft endurteknir til að gefa fleirum kost á að taka þátt, en félagsmenn Korpúlfa voru 1250  í árslok 2025.    

Heilsuefling hefur blómstrað á árinu og mikil fjölgun í gönguhópum, línudansi með Siggu, Qigong með Þóru,dansleikfimi með Auði Hörpu. Vegna fjölgunar í Korpúlfa keilu í Egilshöll     er nú boðið upp á Keilu vikulega, styrktar og jafnvægisleikfimin í samvinnu við Hæfi fullbókuð. Púttið á Korpúlfsstöðum í sókn, sundleikfimin alltaf jafn vinsæl og mikil aðsókn í leikfimishópana í Egilshöll með Ársæli og Margréti, sem brá á það ráð að hafa tvo hópa á þriðjudögum. Boccia í Borgum í umsjón Hjördísar hefst nú vikulega kl. 9:00 á þriðjudögum til að koma á móts við fjölgun í hópnum og sífellt fjölgar í pílukastinu í umsjón Eggerts á föstudagmorgnum.   Einnig er skapandi starf í miklum blóma fullbókað í postulínsmálun á mánudögum með Erlu og listmálun á þriðjudögum með Pétri. Hannyrðahópurinn og prjónað til góðs, gengur vel og  hefur verið í umsjón Guðbjargar og Sigríðar Gísla., í vetur, sama á við um skákhóp Korpúlfa á fimmtudögum í umsjón Hlyns Smára.  Mikil fjölgun hefur verið í allri spilamennsku á árinu 2025, félagsvist á mánudögum og Canasta á fimmtudögum.   Einnig fjölgað í Bridgehóp Korpúlfa á árinu undir stjórn Þóris Sigurðssonar og Þórðar, þau festu kaup á spilatölvum sem skráningartæki við spilamennskuna í marsmánuði.                               


Útibúið okkar á Korpúlfsstöðum tréútskurðadeildin hefur gengið vel á árinu í umsjón Davíðs og Magnúsar Helga.     

Fræðslunefnd Korpúlfa hefur staðið fyrir vinsælum fræðsluerindum á árinu s.s. spjallfundi með Sveini Kjartanssyni Hinsegin fræðslu 8. október.  2. apríl kynnti Dagný Hermannsdóttur textílkennari vettlingahefðir Letta.  Erindi með Sigurði Jóhannssyni um Heiðmörk 5. nóvember og fyrirlestur í Borgum í samvinnu við Frísk í Fjölni 4. nóvember með Agnesi Þóru næringarfræðing. Fræðslunefndin hafði veg og vanda að handverk og sölusýningu Korpúlfa laugardaginn 22. nóvember, var vel sótt, margir tóku þátt með listmuni sína til sölu eða sýnis og Davíð lék á harmonikku fyrir gesti en dagurinn var um leið fjáröflunarleið félagsins. 

Á haustmánuðum hafði samband við okkur Inga Dóra Björnsdóttir meistaranemi í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands og leitaðist eftir að fá að gera meistararitgerð um félagsstarfið í Borgum. Ritgerðin fékk nafnið „Það er gott að vera þar sem gleðin býr“ en hún byggir m.a. á viðtöl við félagsmenn.

Margrét Sæberg kom með Logy og sumartískusýningu í Borgum 23. apríl.  Hreyfivika var í september og þá boðið upp á kennslu í Bollywood dönsum 25. september. 

19. september var haldið Virkniþing í Ráðhúsi Reykjavíkur með fræðsludagskrá og kynningum þar sem Korpúlfar voru með góða fulltrúa.

Skemmtinefndin bauð til hausthátíðar 24. september í Borgum, Ólöf var veislustjóri, Sigga stjórnaði línudansi og sérstakir gestir voru Ingvar trúbador og Mjöll Hólm söngkona.


Sönghópur Korpúlfa Korpusystkin hefur haldið uppi  öflugu tónlistarstarf á árinu undir stjórn Helga Hannessonar, hafa sungið á öllum félagsfundum Korpúlfa í vetur. Haldið tvenna vel sótta tónleika í Borgum 6. desember með gestasöngvurunum Kristínu Birnu Óðinsdóttur og Klöru Davíðsdóttur og vortónleika 23. maí  í Grafarvogskirkju.  

Ferðanefnd Korpúlfa hefur staðið fyrir fjölbreyttum ferðum á árinu 2026. Farið var til Norður Ítalíu 4 til 11. maí, Brussel og Brugge 8 til 12 september báðar ferðirnar í samvinnu við ferðaskrifsstofu Guðmundar Jónassonar og ferð til Austurríkis 26. september til 3. október með Bændaferðum. Þá fór fjöldi Korpúlfa í ferð í Þórsmörk 18. júní. Dagsferð um Garðabæ, Álftanes og  Hafnarfjörð 15. október. Rúmlega 40 Korpúlfar fóru í dagsferð til Vestmannaeyja 26. ágúst 2025.


Menningarnefnd Korpúlfa hefur staðið fyrir dagskrá alla fimmtudaga í vetur, bókmenntahópur mánaðarlega, síðan hafa verið myndasýningar í umsjón Dagþórs, Ingibjargar og Margrétar Sölvadóttur. Sérstakir gestir hafa verið sr. Petrína Mjöll Gunnarsdóttir, Einar Már Guðmundsson verndari bókmenntaklúbbsins, Guðjón Jensson og  Eva Gunnarsdóttir. Bjarni Hall mætti með gítarinn og skemmti 13. nóvember. Þá var Hildur Hákonardóttir með erindi um bók sína „Ef ég væri birkitré „ og farið var í heimsókn á Borgarbóksafnið í Spöng 9. október þegar Rannveig Guðmundsdóttir opnaði þar hannyrðasýningu sína „Eitt spor í einu“.

Leikhúsferðirnar voru tvær á árinu Eltum veðrið í Þjóðleikhúsinu á vorönn og fjölmennur hópur Korpulfa fór í Borgarleikhúsið 19. desember að sjá Rauðu Mylluna.

24. maí var opnuð samsýning Myndlistarhóps Korpúlfa á Borgarbókasafninu í Spöng undir stjórn Péturs Halldórssonar og stóð til 7. júní.

Samsöngstundirnar voru nokkrar á árinu í Borgum undir stjórn Elísabetar Halldóru og ýmissa gesta með henni.                                                                                                                           Í haust færðist eldri borgara samvera Grafarvogskirkju yfir í Borgir alla þriðjudaga með fjölbreyttri dagskrá og helgistund, með því hefur aðsókn aukist til muna.

Þá hafa nokkrir Korpúlfar tekið þátt í lestrarverkefni í samvinnu við Engjaskóla.

Skemmtinefndin stóð fyrir glæsilegri jólagleði Korpúlfa miðvikudagskvöldið 19. nóvember í Gullhömrum. Jólahlaðborð, Theodór var veislustjóri, skemmtiatriði, söngur og dans.                  Kór Borgarholtsskóla heimsótti okkur í Borgir 2. desember með söngdagskrá.                         Þá var boðið upp á námskeið í jólaföndri 2. desember og leikarar Þjóðleikhússins færðu okkur aðventustund með söng og gleði í Borgum 17. desember.  

Margir góðir gestir hafa heimsótt Borgir og Korpúlfa með ósk um kynningu á starfsseminni á árinu, skólahópar, Ljósið, nemendur H.Í. fulltrúar úr Borgarstjórn og fleiri.

Í öllu félagsstarfinu er reynt að skipta niður verkefnum á milli félagsmanna eins og mögulegt er og er öllum þökkuð ómetanleg störf . Þá vil stjórn félagsins þakka öllum þeim sem hafa styrkt Korpúlfa á margvíslegan hátt á árinu, með peningagjöfum, ómældu vinnuframlagi, hugmyndavinnu og skipulagsstarfi.

 

Á þessum fundi mun ég láta af störfum sem formaður, því embætti hef ég gengt síðan á haustmánuðum 2021. Aðalfundur það árið hafði dregist út af covid og fleiru. Aðdragandinn af framboði mínu var stuttur og ég þekkti lítið til félagsins nema að ég hafði verið að ganga með gönguklúbbnum. Faðir minn sem var Korpúlfur hafði skráð mig í félagið nokkrum árum áður og vorum við fyrstu feðgar sem voru skráðir félagar. Ég frétti síðar að þar væru einnig mæðgur en mér lánaðist ekki að kynnast þeim.

Það eru forréttindi að sitja í stjórn Korpúlfa. Þetta félag er einstakt á marga vísu eins og þið auðvitað vitið.

Reykjavíkurborg leggur okkur til húsnæðið, rekur eldhúsið og skaffar starfsmenn okkur til halds og trausts. Það er sannanlega þakkar vert. Fyrir einu og hálfu ári síðan ákvað Austurmiðstöð, sem hefur yfirumsjón með rekstri Borgar að hálfu Reykjavíkurborgar, án nokkurs fyrirvara, að taka af okkur hálfan starfskraft, án þess að nokkuð kæmi í staðinn. Þetta hefur bitnað á starfinu að ýmsu leiti og verðum við að vona að á þessu verði ráðin bót sem allra fyrst.

Stjórnin hefur rætt við Austurmiðstöð um möguleika á að fá stærra húsnæði til afnota, en núverandi húsnæði er nú þegar fullnýtt. Var rætt um að fá efri hæðina hér í Borgum til afnota. Við tókum skýrt, fram að þar sem er þar rekin mjög viðkvæm starfsemi, gerðum við okkur fulla grein fyrir að það gæti tekið nokkurn tíma að finna þeirri starfsemi nýtt húsnæði. Okkur til mikillar ánægju mætti þessi hugmynd skilningi og fljótlega fengum við þá frétt að hugsanlega gætum við fengið herbergi og plássið á stigapallinum í suðurenda hússins til afnota fljótlega. Þetta mundi henta okkur mjög vel til smærri fundarhalda og fleiru þess háttar, en stjórninni hefur ekki tekist að fá neinar frekari fréttir af málinu á þessu ári.


Korpúlfar er samfélag í fyllstu merkingu þess orðs.

Ég átti á mínum yngri árum átti sæti í bæjarstjórn lítils bæjarfélags í 20 ár

og hef í huganum oft líkt Korpúlfum við bæjarfélagi  þar sem stjórn félagsins er bæjarráðið og sameiginlegu fundirnir með stjórn og nefndum sem bæjarstjórninni. Bæjarstjórinn er Birna. Það sem er ólíkt er að Korpúlfar rukka ekki þegna sína um útsvar eða aðra skatta, heldur styðst við frjáls framlög þegna sinna þegar á þarf að halda og ómælda sjálboðaliðsvinnu.

Þetta fyrirkomulag hefur gengið vel

Ég vil svona innan sviga nota þetta tækifæri til að minna ykkur á að þeir sem telja sig hafa efni á að setja inn á bankareikninginn okkar einhverja upphæð árlega hjálpa til að viðhalda þessu fyrirkomulagi. Bankareikningurinn er í dagskránni

Þetta fyrirkomulag er allt í senn ótrúlega fallegt, gjöfult og ekki síst skemmtilegt.

Ég vil að lokum þakka fráfarandi stjórn, nefndum og öllum korpúlfum fyrir samstarfið og umburðalindið þessi ár, það sama á við um starfsfólkið í eldhúsinu og Guðrúnu Barböru.

Síðan en ekki síst Þakka ég Birnu fyrir samstarfið, hún er alveg ótrúleg kona.

Það að vera formaður Korpúlfa með Birnu sér við hlið er „Pice of cake“ Hugmyndaflugið, dugnaðurinn og góðsemi hennar á engan sinn líka.

Hér líkur þessum lestri og ég þakka fyrir mig.

 

Theodór Blöndal formaður Korpúlfa.