Stjórnar- og nefndarfundur Korpúlfa Miðvikudaginn 4. nóv. kl. 10.00
Fundargerð
Ríkharð Brynjólfsson fundarstjóri
Guðrún Barbara Tryggvadóttir fundarritari
Fundur var settur kl. 10:00
1. Fundargerð síðasta stjórnar og nefndarfundar var lesin og samþykkt.
2. Breytingar á facebook síðu Korpúlfa. Grímkell sem verið hefur umsjónarmaður síðunnar ætlar að hætta. Auður Ýr nýr starfsmaður í Borgum ætlar að taka við að hafa umsjón með henni.
3. Upplýsingar frá nefndum
Fræðslunefnd: Handverkssýningin verður þann 21. nóvember í umsjón fræðslunefndar eins og verið hefur. Rætt var um hvort að lengja ætti opnunartíma sýningarinnar vegna þess að bókasafnið i Grafarvogi er líka með handverkssýningu á sama tíma.
Í desember verður fyrirlestur um svæðanudd og þann 6. janúar mun Vigfús halda áfram með fyrirlestraröð sína: Hringferð um Íslendingabyggðir í Vesturheimi.
Ferðanefnd: Ferð til Gdansk í Póllandi verður þann 25. maí næstkomandi. Einnig er ferðanefndin farin að ræða um innanlandsferðir fyrir sumarið.
Sönghópurinn verður með jólatónleika þann 28. nóvember næstkomandi og standa æfingar yfir. Nú er hægt að kaupa gjafakort fyrir sönggjaldi Korpusystkina næstu annar. Góð gjöf til að gefa Korpusystkinum frá ættingjum og vinum.
Menningarnefnd: Leikhúsferð er áætluð eftir áramót og þann 19. nóv. fjallar bókmenntahópurinn um bókina: Sonur minn eftir Alejandro Palomas.
Skemmtinefnd: Félagsvistin hefur verið vel sótt í haust.
Jólahlaðborðið verður í Gullsmára þann 10. 12. Gísli Einarsson verður veislustjóri. Aðventufundurinn verður svo þann 16.12.
4. Sölu- og handverkssýngin verður laugardaginn 21. nóvember í umsjón fræðslunefndar. Ákveðið hefur verið að selja kaffi og kleinur og hafa líka kökubasar, allt til styrktar Korpúlfum.
5. Félagsfundur sá síðasti á árinu verður haldinn þann 25. nóvember.
6. Nýárstónleikar 2027 verða eins og verið hefur en 50 miðar hafa verið pantaðir og áætlað er að farið verði með rútu frá Borgum.
7. Önnur mál voru engin og fundi slitið kl. 10:40.
Stjórnar og nefndafundur 7. október 2026.
1. Nýi starfsmaðurinn í Borgum mætti og kynnti sig. Hún heitir Auður Ýr Sigurþórsdóttir og er ættuð úr Skagafirðinum og Eyjafirðinum, hún er gift og á þrjár stelpur sem hún er búin að
vera að sinna síðustu ár ásamt því að mennta sig, hún er mjög spennt fyrir nýja starfinu.
2. Fundargerð síðasta fundar lesin af ritara.
3. Mestöll fyrirhuguð dagskrá er komin í gang, nema púttið en það mun rætast úr því innan
skamms. Tölvufærnisnámskeið er að fara af stað sem Grímkell stendur fyrir en það er full
þörf á því. Sigurður Skúlason byrjaði þann 6 október með leiklesturinn og verður vikulega
og áætlar frumsýningu á leikverkinu í janúar 2027. Kínaskákin verður á þriðjudögum milli k.
14 og 16 og hefst næsta þriðjudag kl. 14.
4. Fræðslunefndina vantar fleiri fundardaga vegna þess að Vigfús er búin að setja saman efni
sem fjallar um Íslendinga slóðir í Kanada sem mun taka 4 klukkutíma að flytja það allt. Þess
vegna þarf rýmri tíma og það verður unnið í samvinnu með menningarnefndina. Einnig er
á dagskrá að Magnús mun fjalla um byggð í Grafarvoginum en hann er mjög fróður um þessi efni.
5. Ferðanefndin kom inn á að frá síðasta fundi er lokið svokallaðri Dónárferð sem var allt
öðruvísi en lagt var upp með vegna vatnsleysis í Dóná, síðan var farið í haustlitaferð um
Grímsnes og Þingvöll með viðkomu á Nesjavöllum. Væntanleg aðventuferð til Wurzburg er
uppseld. Einnig er verið að skoða væntanlega vorferð sem ekki er fullkláruð en verður kynnt
eftir áramót, Einnig hugsanlega ferð til Póllands. Innanlandsferðir eru einnig til skoðunar
og tillögur velkomnar.
6. Sönghópurinn: Æfingar eru í gangi og undirbúningur vegna næsta félagsfundar gengur vel.
7. Menningarnefndin: Það var farið í Ljósmyndasafnið að vísu var þátttakan dræm en ferðin
mjög fróðleg og skemmtileg. Útgáfuhóf verður í Borgum vegna Bókarinnar Birkilundur efir
Margréti Sölvadóttur. Í byrjun nóvember koma aðilar frá Heyrnarhjálp og verða með
kynningu. Þann 29. október verða sýndar gamlar kvikmyndir í Borgum.
8. Skemmtinefndin: 24. september var haldið skemmtikvöld og það seldust 90 miðar, sem var
ívið minni þátttaka en síðast ár, en það slapp samt til, það var plötusnúður sem sá um
danstónlistina.
9. Félagsfundur 28. október: Sönghópurinn er að undirbúa sig og væntanlega mun Hjálmar Waag Hannesson. sem var sendiherra, segja sögur frá sinni tíð sem sendiherra, sem verður væntanlega
áhugavert.
10. Önnur mál: Jólahlaðborð verður 10. desember að Gullhömrum og skemmtinefndin hefur
svigrúm til að ráða veislustjóra og skemmtikraft til að gera mætingu á jólahlaðboðið meira spennandi. Einnig kom fram að ekki hefur tekist að hafa upp á einstaklingnum sem safnaði flestum áheitum fyrir okkar hönd í Reykjavíkur maraþoninu. Hann heitir Wes Baden en það er áhugi að fá hann í heimsókn og þakka honum fyrir aðstoðina. Að lokum minnti formaðurinn okkar á næst fund í byrjun nóvember.
Stjórnar og nefndafundur 02.09.26
Stjórnar- og nefndarfundur Korpúlfa Miðvikudaginn 6. maí kl. 10.00
Fundargerð
Ríkharð Brynjólfsson fundarstjóri
Guðrún Barbara Tryggvadóttir fundarritari
Fundur var settur kl. 10:00
1. Lesin fundargerð síðasta stjórnar og nefndarfundar og var hún samþykkt með einni
breytingu, en hún var að ekkert hafði verið skrifað um fræðslunefndina og hennar
innlegg í fundinn.
2. Upplýsingar í starfsskrá fyrir næsta starfsár, 2026-2027
Stjórn hafði samþykkt að halda áfram útgáfu á starfsskrá. Nefndir voru beðnar um að
koma með efni og dagsetningar á því sem þær ætla að vera með og fellur ekki undir
venjubundna dagskrá.
Kynningarhátíð verður haldinn 8. september
3. Upplýsingar frá nefndum
Fræðslunefnd er með dagskrá alltaf fyrsta miðvikudag í mánuði og mun halda því
áfram. þau komu með dagsetningu að handverkssýningunni í haust að hún yrði 21. eða 28.
nóvember. Göngudagskrá sem er núna á vegum nefndarinnar er hálfnuð.
Ferðanefnd hefur komið sér saman um að Sigmundur verði formaður og Jóna Þórunn
ritari. Fyrri Vatnsnesferðin er búin og uppselt í seinni ferðina. Ferð til Ítalíu, Stresa,
verður núna 21. til 28. maí. Dónársigling verður í haust og aðventuferð til Würtzburg
fyrir jól. og er uppselt í báðar ferðirnar. Innanlandsferðir eru í athugun, þar á meðal
ferð um Snæfellsnes ásamt ferð til Akraness og Bjarteyjarsand. Einnig var rætt um
haustlitaferð og réttarferð.
Sönghópur verður með tónleika þann 16. maí og standa æfingar yfir en mikið verður í
tónleikana lagt. Hugmynd að dagsetningu fyrir jólatónleika kórsins er 28. nóvember
en ekki er hægt að hafa handverkssýninguna á sama degi.
Menningarnefnd stefnir á tvær leiksýningar og tvær ferðir á menningarviðburði næsta
vetur. Nefndin mun klára dagskrána í vor með dagskrá innan bókmenntahópsins.
Skemmtinefnd. Síðasta félagsvistin verður þann 15. júní en eftir það munu almennir
félagar taka við að halda vistina í sumar.
Haustfagnaður er áætlaður þann 23. september. Jólahlaðborð verður þann 10.
desember í Skálinni í Gufunesi.
4. Starfsdagur verður hjá starfsfólki Borga þann 12. maí og fellur þá niður matur og kaffi
en húsið verður opið.
5. Sumarstarfsemi sumarið 2026. Hreinsunardagur er áætlaður 10. júní og eru allir
hvattir til að taka þátt. Gönguhópar fara með ruslatínur í göngurnar. Hinir þrífa í
kringum húsið og planta blómum. Síðan verður grillað á eftir.
6. Næsti sameiginlegi fundurinn verður þann 2. september
7. Önnur mál: Stjórn upplýsti að hún ætlaði að hefja undirskriftasöfnun fyrir því að fá
Birnu Róbertsdóttur aftur í fullt starf í Borgum.
Rætt var um félagsgjöld í Korpúlfum og lögð áhersla á að félagsstarfið væri fyrir alla,
ekki bara Korpúlfa.
Fundi var slitið 11:10.
Fundargerð sameiginlegs fundar stjórnar og nefnda Korpúlfa 1. apríl 2026.
Mættir: Sjá mætingarlista.
Fundardagskrá.
Þetta var gert:
Ferðanefnd: minntist á aðventuferð næsta haust og væntanlega ferð á Vatnsnes og í Hvalfjörð og hugsanlega að fara í Brynjudal.
Sönghópurinn: skýrði frá ferð á Karmen.
Menningarnefndin: Viðburður 9. apríl, bókmenntahópur 16. apríl og leikhúsferð á Ormstunga.
Skemtinefnd: Ný tölva verður prufukeyrð í dag. Félagsvist er í góðu gengi einnig kom fram kvörtun vegna frágangs á salnum eftir helgarleigu.
Ríkharð minntist á að Fræslunefnd og Menningarnefnd eiga eftir að skila af ser vegna mars mánaðar.
Önnur mál:
Fundi slitið kl. 11:20
Ritari: Jón V. Pétursson
Fundargerð stjórn og nefnda Korpúlfa 4 mars 2026.
Fyrsti fundur nýrrar stjórnar og nefndar Korpúlfa.
Allir mættir nema Rannveig Guðmundsdóttir. Jón Viglund Pétursson. Jóna Vernharðsdóttir og Elísabet Halldóra Einarsdóttir
Formaður Rikharð Brynjólfsson setti fundinn og bað fundarfólk að kynna sig.
Formaður las fundargerð síðasta fundar.
Birna fór yfir lög Korpúlfa og starfsreglur nefnda félagsins og allir fengu eintök til varðveislu.
Upplýsingar frá nefndum.
Önnur mál.
Félagsfundur 25 mars Eva Lind félagsráðgjafi Unnar lögreglumaður verða með fyrirlestur um ofbeldi gagnvart eldra fólki. Margrét Eiríksdóttir með skemmtisögu.
Sumarfrí starfsfólk í Borgum, upplýsingar um það.
Athuga með stofnun leiklistarhóps
A.t.h með átthagaskemmtun.
Sigurður í fræðslunefnd talaði um gönguferðir í sumar og sjálfboðaliðaferð í apríl í Heiðmörk, þátttökulisti verður lagður fram.
Mikil umræða um margt út og suður.
fundi slitið kl 11.30
Ritari Amalía Pálsdóttir.
©2022 Korpúlfar - Spönginni 43, 112 Reykjavík - Vefstjóri Snæbjörn Kristjánsson